Innlent

Fjórtán ára á hundrað kílómetra hraða með fimm farþega

Pilturinn ungi var með fimm vini og kunningja með sér í bílnum
Pilturinn ungi var með fimm vini og kunningja með sér í bílnum
Fjórtán ára unglingspiltur var tekinn við akstur fólksbíls á Vesturlandsvegi í Reykjavík á þriðja tímanum á aðfararnótt mánudags. Bíll piltsins mældist á yfir 100 km hraða en með honum í ökuferðinni voru fimm vinir og/eða kunningjar á aldrinum 13-15 ára.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Ökumaðurinn og farþegarnir voru fluttir á lögreglustöð en þaðan var hringt í foreldra og forráðamenn sem komu og sóttu krakkana. Eins og gefur að skilja hefur ökumaðurinn ekki aldur til að aka bíl en að auki á hann, sem og farþegarnir fimm, að vera heima hjá sér á þessum tíma sólarhrings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×