Landsbankinn hafði ekkert samráð við Íbúðalánasjóð 26. júlí 2011 19:45
Ekkert samráð var haft við Íbúðalánasjóð þegar ákveðið var að færa niður lán Landsbankans, þrátt fyrir að sjóðurinn ætti meira en 50 milljarða lánanna. Lögfræðingur sjóðsins segir að þessi lán verði ekki lækkuð nema sjóðnum verði bætt tjónið. Í lok maímánuðar kynnti Landsbankinn ýmsar leiðir til að lækka skuldir viðskiptavina sinna sem voru talsvert ríflegri en rúmaðist innan þess ramma sem Íbúðalánasjóður, bankar og aðrar lánastofnanir höfðu áður fallist á. Þá fullyrti bankastjórinn að varúðarsjóðir bankans stæðu að baki aðgerðunum, og að lán allt að 60 þúsund viðskiptavina yrðu færð niður á grundvelli aðgerðanna. Íbúðalánasjóður á hins vegar greiðslustreymi lána upp á 57 milljarða króna sem Landsbankinn þjónustar, en sjóðurinn keypti lánasafnið árin 2004 og 2005. Þrátt fyrir það staðfestir Gunnhildur Gunnarsdóttir, lögfræðingur Íbúðalánasjóðs, að ekkert samráð hafi verið haft við sjóðinn vegna aðgerða bankans. Hún telur útilokað verðmæti lánanna verði fært niður gagnvart sjóðnum nema samþykki hans liggi fyrir eða greiðsla komi fyrir rýrnun eignanna. Fulltrúar Íbúðalánasjóðs og Landsbankans hafa ræðst við um með hvaða hætti Landsbankinn tryggi að Íbúðalánasjóður verði ekki fyrir tjóni vegna aðgerða bankans, en niðurstaða liggur enn ekki fyrir. Upplýsingafulltrúi Landsbankans fullyrðir þó að þetta skipti engu máli gagnvart viðskiptavinum bankans; þeir verði allir meðhöndlaðir með sama hætti innan Landsbankaleiðarinnar.
Mest lesið Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Innlent Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Innlent Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Innlent Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran Erlent Tugir lögregluþjóna slasaðir eftir óeirðir öfgamanna í Southport Erlent Solaris misnoti kerfið til að hrekja Helga Magnús úr starfi Innlent Segist ekki geta ábyrgst öryggi þeirra sem dvelja næturlangt í Grindavík Innlent Ekki hrifin af breytingum en óskar Höllu velfarnaðar Innlent Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Innlent Hjólhýsi sem búið var í að engu orðið Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Vesturlandsvegi Embættistaka forseta, veðrið um helgina og skrýtnar gistináttatölur Hjólhýsi sem búið var í að engu orðið Ekki hrifin af breytingum en óskar Höllu velfarnaðar Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Ástand vega á Íslandi mikið áhyggjuefni Verulega hvasst í Eyjum á laugardaginn Solaris misnoti kerfið til að hrekja Helga Magnús úr starfi Segist ekki geta ábyrgst öryggi þeirra sem dvelja næturlangt í Grindavík Rúður brotnar í Rimaskóla Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Flutningabíll varð alelda í Þrengslum Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum „Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Feðgar með 90 ára reynslu á elstu og minnstu rakarastofu landsins Hjólhýsið fuðraði upp „Ekki við hæfi“ að dómsmálaráðherra tjái sig um mál Helga Umdeild ummæli, líkur á gosi og truflandi skilti „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Vonar að ráðherra verði ekki við ósk Sigríðar Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Svona verða hátíðarhöldin á fimmtudaginn Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Kobbi Láki kom stýrisvana skútu til bjargar Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Sjá meira