Innlent

Brotist inn í þrjá sumarbústaði

Komið er í ljós að brotist hefur verið inn í þrjá sumarbústaði í Skorradal um helgina og þaðan stolið margvísegum raftækjum og fleiru.

Einnig var brotist inn í geymsluhúsnæði í Hvalfirði og stolið dýrum tækjum úr báti, sem þar er geymdur. Þjófarnir eru ófundnir og óskar lögreglan í Borgarnesi eftir ábendingum um grunsamlegar mannaferðir á þessum slóðum um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×