Innlent

Brotist inn á Bíldshöfða

Brotist var inn í fyrirtæki við Bíldshöfða í Reykjavík í nótt, en ekki er vitað hverju, eða hvort einhverju var stolið þar. Þótt vart líði sú nótt að ekki sé brotist einhvernstaðar inn á höfuðborgarsvæðinu, gerast innbrot æ tíðari að degi til, og þá einkum í íbúðahverfum.

Lögregla hvetur því fólk til að veita grunsamlegum mannaferðum athygli og leggja á minnið lýsingu á þeim, og bílum, sem þeir kunna að vera á. Slík árvekni almennigns hafi þegar orðið til þess að upplýsa innbrot og þjófnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×