Innlent

Hákarlaþjófnaður: Meistari á Múlakaffi aldrei heyrt annað eins

Valur Grettisson skrifar
Kæsti hákarlinn. Myndin er af vef Freistingar, freisting.is.
Kæsti hákarlinn. Myndin er af vef Freistingar, freisting.is. Mynd Freisting.is

„Maður hefur aldrei heyrt um svona lagað," segir matreiðslumeistari á Múlakaffi, Jón Örn Jóhannesson, um stórþjófnað á kæstum Hákarli í Reykjanesbæ. Þjófarnir stálu 500-700 kílóum af fullverkuðum hákarli en létu þann óverkaða í friði. Kunnáttumenn segja fagmenn hafa verið að verki.

Lögreglan hefur engar vísbendingar fengið og kannast ekki við annan eins þjófnað á fiskmeti.

Matreiðslumeistari Múlakaffis segir magnið hreint út sagt ótrúlegt. Múlakaffi þjónustar um sex til átta þúsund manns yfir þorrann. Yfir það tímabil kaupa þeir um tvö til þrjú hundruð kíló af verkuðum hákarli og selja.

Jón segir það aldrei létt verk að fá hákarl hér á landi en veitingastaðir kaupa hann aðallega frá Suðurnesjum og Vestfjörðum. Þá er ekki gefið að fá góðan hákarl heldur. Þannig fékk Múlakaffi skemmdan hákarl í fyrstu.

Spurður um verðmæti á hákarlinum svarar Jón því til að kílóið af unnum kæstum hákarli geti farið upp í fimm þúsund krónur. Sé tekið mið af því verði má gera ráð fyrir því að eignartap eigandans, sem stolið var frá, sé á á þriðju milljón króna.

„Það er ekki létt verk að taka þetta," segir Jón Örn og bendir á að þeir sem stálu hákarlinum hefðu væntanlega þurft stóra sendibíl. Svo þarf pláss til þess að geyma slíkt magn af hákarli. Jón segist ekki hafa heyrt af öðru eins, hann segir algengara að óprúttnir aðilar steli humri.

Lögreglan hvetur veitingamenn til þess að tilkynna til þeirra ef grunsamlegir sölumenn reyna að selja þeim kæstan hákarl. Nú fer þorrinn að ganga í garð og því talsvert meiri eftirspurn eftir kæstum hákarli.

Hægt er að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420 1700.


Tengdar fréttir

Hálfu tonni af kæstum hákarli stolið - fagmenn að verki

Rúmlega hálfu tonni af kæstum hákarli var stolið úr hjalli skammt fyrir utan Reykjanesbæ í vikunni. Þjófurinn, eða þjófarnir, voru greinilega vel að sér í hákarlaverkun samkvæmt heimasíðunni Freisting.is sem greindi fyrst frá málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×