Erlent

Fá ekki ís ef þeir leifa mat

Þremur gestum á veitingastaðnum Mongolian Barbeque í Gautaborg var neitað um eftirrétt og þeim vísað út þar sem þeir borðuðu ekki allt sem þeir höfðu raðað á diskana sína af hlaðborði.

Þegar þjónninn, sem hafði boðið gestunum ís, sá að einn gestanna hafði leift matnum tilkynnti hann að eftirréttur væri aðeins innifalinn í verðinu ef menn kláruðu. Veitingastjórinn ræddi síðan við gestina um svöng börn í Afríku og nauðsyn á því að kenna unglingum að fara ekki illa með mat.- ibs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×