Erlent

Mamma Winehouse segir hana hafa verið fárveika

Margir hafa lagt blóm til minningar um söngkonuna
Margir hafa lagt blóm til minningar um söngkonuna Mynd/AFP
Janis Winehouse móðir söngkonunnar Amy Winehouse, sem fannst látin á heimili sínu í gær, segir að hún hafi verið fárveik þegar hún hitti hana daginn áður. Það hafi í raun verið tímaspursmál hvenær hún myndi deyja.

Hún segir að Amy hafi verið út úr heiminum og illa haldin. Hún sagðist kveðja dásamlega dóttur sem skildi stórt gat eftir í hjörtum fjölskyldumeðlima.

Breskir fjölmiðlar fullyrða að Amy hafi tekið of stóran skammt af eiturlyfjum og segir breska blaðið Daily Mail hafa heimildir fyrir því að Amy hafi keypt e-töflur og kókaín kvöldið áður en hún lést.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×