Sport

Auðvelt hjá Khan gegn Judah - vill mæta Mayweather næst

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Khan fagnar í nótt.
Khan fagnar í nótt.
Breski boxarinn Amir Khan stóð undir nafni í nótt þegar hann kláraði Zab Judah í fimmtu lotu í bardaga þeirra í Las Vegas.

Flestir bjuggust við því að hinn 24 ára gamli Khan myndi lenda í miklum vandræðum með hinn 33 ára gamla Judah. Svo varð ekki.

Khan lamdi Judah eins og harðfisk og kláraði hann með svakalegu hægri handar skrokkhöggi.

Khan vill berjast við Floyd Mayweather næst.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×