Innlent

Stiller drakk Macchiato á Skólavörðustíg

Hollywood-stjarnan Ben Stiller spókaði sig með vinum sínum í miðborg Reykjavíkur í gær. Meðal annars sást til Stillers á Café Babalú á Skólavörðustíg þar sem hann fékk sér einn bolla af Macchiato.

Sjónarvottar segja hann hafa verið afar vingjarnlegan og lítið látið fara fyrir sér.

Stiller birti mynd innan úr Hörpu í gærkvöldi á Twitter-síðu sinni og spurði aðdáendur hvar hún væri tekin. Fólk giskaði meðal annars á aðalverksmiðju bílaframleiðandans BMW en nokkru síðar barst rétt svar – frá íslenskum aðdáanda. - sh, sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×