Fótbolti

Sleppur Veigar Páll við keppnisbann?

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Salan á Veigari Páli hefur vakið athygli í Noregi og er gamla liðið hans grunað um græsku í því máli.
Salan á Veigari Páli hefur vakið athygli í Noregi og er gamla liðið hans grunað um græsku í því máli.
Norskir fjölmiðlar hafa fjallað ítarlega um umdeild atriði varðandi vistaskipti Veigars Páls Gunnarssonar í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Stabæk seldi sem kunnugt er Veigar Pál til Vålerenga í Osló og vakti það athygli hvernig staðið var að þeim viðskiptum. Á morgun mun norska knattspyrnusambandið taka ákvörðun um hvort ákæra verði lögð fram í málinu.

Ef Stabæk og Vålerenga verða fundin sek í þessu máli gæti Veigar Páll átt yfir höfði sér keppnisbann hjá FIFA og UEFA.

Egil André Bergum, sem er talsmaður nefndarinnar sem hefur rannsakað málið hjá norska knattspyrnusambandinu, segir að nefndin hafi fengið svör við flestum þeim spurningum sem hún hafði lagt fyrir aðilana sem tengjast málinu.

Aðeins umboðsmaður Veigars Páls hafi ekki svarað spurningum nefndarinnar. Umboðsmaður Veigars er Arnór Guðjohnsen. Bergrum segir að skortur á svörum frá Arnóri muni ekki tefja framvindu málsins úr því sem komið er.

Norska sjónvarpsstöðin TV2 greindi frá því fyrir um hálfum mánuði að Vålerenga hafi aðeins greitt 20 milljónir íslenskra kr. fyrir Veigar Pál og 80 milljónir kr. fyrir samning hjá 15 ára gömlum leikmanni Herman Stengel sem var einnig leikmaður Stabæk. Forráðamenn Stabæk liggja undir þeim grun að hafa selt Veigar Pál fyrir þessa lágu upphæð til þess koma í veg fyrir að greiða franska liðinu Nancy háar fjárhæðir. Norska meistaraliðið Rosenborg hafði áður boðið 100 milljónir kr fyrir Veigar Pál en því tilboði var hafnað. Talið er að Stabæk hafi „látið" Stengel fylgja með í kaupunum til Vålerenga til þess að losna við að greiða Nancy 50 milljónir kr.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×