Tilfinningaríkur Dolli situr heima 10. janúar 2011 12:00 Adolf Ingi Erlingsson hefur um árabil lýst leikjum íslenska landsliðsins á stórmótum. Hann verður hins vegar að sitja heima að þessu sinni. „
Jú, ég hef alveg setið heima en þau eru ekki mörg mótin,“ segir Adolf Ingi Erlingsson íþróttafréttamaður. Það hefur varla farið framhjá neinum að HM í handbolta hefst í vikunni. Að þessu sinni verður sýnt frá mótinu beint á Stöð 2 Sport sem þýðir að Adolf Ingi mun ekki lýsa neinum leik á mótinu, nokkuð sem hefð hefur verið fyrir undanfarin ellefu ár. Adolf kveðst þó ekki vera neitt svakalega svekktur en hann hefur fylgt þjóðinni í gegnum sigra og sorgir strákanna okkar allt frá Evrópumótinu í Króatíu árið 2000. „Fólk er fljótt að gleyma, ég sat til að mynda síðast heima á EM í Sviss 2006,“ segir Adolf og bætir því við, af sinni alkunnu hógværð, að hann búist ekki við því að fólk eigi eftir að sakna hans. „En ef svo er þá yrði það bara skemmtilegt.“ Adolf viðurkennir hins vegar að hann verði oft tilfinningalega tengdur „strákunum“ á þessum miklu ferðalögum. Hann þekki orðið marga þeirra mjög vel og ekkert síður þjálfarana og þá sem standa fyrir utan völlinn eins og sjúkranuddara og lækna. Og Adolf er ekki neinum vafa hvert eftirminnilegasta mótið sé, Ólympíuleikarnir í Peking, þegar strákarnir komust í sjálfan úrslitaleikinn en töpuðu fyrir Frökkum. Margir muna eflaust eftir því myndbroti þegar Adolf þerraði tár af hvarmi sínum þegar ljóst var að sæti í úrslitum var náð. „Þetta var mikið afrek og sennilega er þetta eitt mesta afrekið í íslenskri íþróttasögu.“ Og þá þarf vart að rifja upp magnaðan varnarleik Alexander Petterson sem Adolf lýsti með sínum einstaka hætti. Íþróttafréttamaðurinn kveðst hins vegar vera hóflega bjartsýnn fyrir mótið núna og telur strákana setja markið á sjö efstu enda gefi slíkt sæti í undankeppni Ólympíuleikana. „Ég sé fimmta eða sjötta sætið fyrir mér.“ - fgg
Mest lesið Fékk hjartaáfall og missti 50 kíló Lífið Loksins, loksins unnu skáldin kvalara sína! Lífið Veittu verðlaun fyrir dónalegasta orðið á Íslandsmeistaramóti í skrafli Lífið „Þetta er saga um sambandsslit tveggja vinkvenna“ Lífið Þórhildur og Hjalti eiga von á barni Lífið Jiggly Caliente dragdrottning látin Lífið Halla og Biden hittust í útför páfans Lífið Björn plokkar í stað Höllu Lífið Ein glæsilegasta kona landsins á lausu Lífið Á erfitt með að muna nöfnin á börnum vina sinna Lífið Fleiri fréttir Fékk hjartaáfall og missti 50 kíló Loksins, loksins unnu skáldin kvalara sína! Veittu verðlaun fyrir dónalegasta orðið á Íslandsmeistaramóti í skrafli Þórhildur og Hjalti eiga von á barni Jiggly Caliente dragdrottning látin „Prófið að plokka og sjáið árangurinn“ Björn plokkar í stað Höllu „Þetta er saga um sambandsslit tveggja vinkvenna“ Krakkatían: Pokémon, spænska og hjólreiðakeppni Halla og Biden hittust í útför páfans Á erfitt með að muna nöfnin á börnum vina sinna Fréttatía vikunnar: Frans páfi, Kaffi kjós og tónleikar Hildur Vala og Mikael Kaaber í aðalhlutverkum Moulin Rouge Vonast til að fá fullkomna sundlaug í Reykjadal Raf- og danstónlistarveisla í Austurbæjarbíó Ekkert sundfataatriði í Ungfrú Ísland unglinga Sérfræðingar deila um typpi refilsins en Sigríður Hagalín er búin að telja Ein glæsilegasta kona landsins á lausu Glæsihús á Seltjarnarnesi á 240 milljónir Fór í tvær lýtaaðgerðir á sama deginum Á eiginmann og kærasta og allir sáttir Öskurdrottningin Lar Park Lincoln er látin Sautján langveik börn fengu ferðastyrk Syngja Húsavík á Húsavík með stúlknakórnum Laufey og Júnía fögnuðu afmælisdeginum í Disney-garðinum Egill Logi Jónasson valinn bæjarlistamaður Akureyrar Frægustu vinslit Íslandssögunnar Stefán Einar og Sara Lind í sundur Bíllinn fannst þremur vikum eftir þjófnaðinn og þá lögfræðibók með Tólf og þrettán ára fatahönnuðir á Akureyri slá í gegn Sjá meira