Innlent

Ekið á hross í Grafningi

Ekið var á hross á móts vi bæinn Torfastaði í Grafningi í gærkvöldi. Hesturinn meiddist svo alvarlega að ákveðið var að aflífa hann á staðnum.

Nokkrir fleiri hestar höfðu sloppið út á veginn, en þeir voru reknir inn í girðingu. Ökumann bílsins sakaði ekki, en bíllinn skemmdist eitthvað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×