Íslenskt gjaldþrotamet líklega slegið á fimmtudag 24. janúar 2011 10:50
Á fimmtudaginn birtir Hagstofan tölur um nýskráningar og gjaldþrot fyrirtækja í desember 2010 og þá verður ljóst hvort að nýtt met verður slegið í fjölda gjaldþrota á nýliðnu ári. Því miður er útlit fyrir að svo verði, en fyrstu 11 mánuði síðasta árs voru 877 fyrirtæki úrskurðuð gjaldþrota sem er aukning um 5,8% á milli ára. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á sama tímabili árið 2009 höfðu 829 fyrirtæki hlotið sömu örlög. Alls voru 101 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í nóvember síðastliðnum samanborið við 80 fyrirtæki á sama tíma í fyrra. Gjaldþrot jukust því um 26% í nóvember frá fyrra ári. Allt útlit er því fyrir að fyrra met frá árinu 2009 hvað varðar fjölda gjaldþrota verði slegið út. Árið 2009 voru 910 fyrirtæki úrskurðuð gjaldþrota sem var það mesta sem sést hefur undanfarna áratugi. „Óhætt er að segja að flestir hafi í upphafi síðasta árs vonast til þess að það met yrði ekki slegið og að birta tæki til í atvinnulífinu," segir í Morgunkorninu. „Þær vonir hafa því miður brugðist enda hefur fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja gengið mun hægar fyrir sig en vonast var til, efnahagsbatanum hefur seinkað og lítið hefur verið um fjárfestingar í atvinnulífinu. Horfur fyrir árið eru þó bjartari og gert er ráð fyrir að hagvöxtur taki við af samdrætti á þessu ári og því má því reikna með að gjaldþrotum fyrirtækja fari fækkandi að sama skapi."
Mest lesið Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Viðskipti innlent Plasttappamálið flaug í gegnum þingið Neytendur Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ Atvinnulíf Íhuga hærri tolla á alla Viðskipti erlent Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Viðskipti innlent Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur Samstarf Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara Samstarf Eldisfiskur fluttur út fyrir 54 milljarða króna Viðskipti innlent Deila um þvottahús stöðvar ekki Hreint í bili Viðskipti innlent BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Samstarf Fleiri fréttir Besta rekstrarár frá opnun Hörpu Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Deila um þvottahús stöðvar ekki Hreint í bili Eldisfiskur fluttur út fyrir 54 milljarða króna Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Trúir ekki að menn loki fiskvinnslu til að mótmæla veiðigjöldum „Þetta er afnotagjald“ Play komið með flugrekstrarleyfi á Möltu Jón Ólafur í framboði til formanns SA Eigendaskipti hjá Fótbolta.net Feðgarnir nú aftur einu hluthafarnir í Eyri Invest Eyjólfur Árni hættir hjá SA Hagnaðist um tvo milljarða: Ljóst að greinin megi ekki við hækkunum Verðbólga heldur áfram að hjaðna Versta sviðsmyndin sé að lenda á milli Evrópu og Bandaríkjanna í tollastríði Íhuga að sameina lífeyrissjóði „Reiðarslag fyrir þau þorp þar sem stundaðar eru veiðar og vinnsla“ Tollastríðið gæti vel haft áhrif á lífskjör almennings Salóme tekur við af stofnanda Ísorku Helgi ráðinn sölustjóri Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Kemur nýr inn í fjármálastöðugleikanefnd Mikil óvissa í alþjóðamálum gæti reynt á þjóðarbúið Segir útlitið svart fyrir sjávarútveginn og breytingarnar illa unnar „Íslenskur sjávarútvegur er burðarás í atvinnulífinu“ Lýsa yfir verulegum áhyggjum af tvöföldun veiðigjalda Allt að tvöfalda veiðigjöldin og segja útgerðina þola það vel Aflinn verði verkaður annars staðar eftir breytingar stjórnarinnar Sækja á sjötta milljarð króna Laun eftir kjarasamningi „gervistéttarfélags“ sögð tugum þúsunda lægri Sjá meira