Körfubolti

Margrét Kara: Þetta gerðist í einhverju bræðikasti í hita leiksins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Margrét Kara Sturludóttir, leikmaður KR, var í viðtali hjá Guðjóni Guðmundssyni, íþróttafréttamanni á Stöð 2 þar sem þau ræddu leikbann Margrétar Köru en hún var dæmd í tveggja leikja bann fyrir að slá til Haukastelpunnar Maríu Lindar Sigurðardóttur í leik Hauka og KR fyrir rúmri viku.

Margrét Kara, sem var valin í úrvalslið seinni hluta Iceland Express deildar kvenna í dag, mun missa af tveimur fyrstu leikjum KR og Keflavíkur í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Það má sjá viðtal Gaupa við hana með því að smella hér fyrir ofan.

„Mér finnst það ofboðslega leiðinlegt að fá ekki að vera með sérstaklega fyrir KR og liðsfélagana mína," sagði Margrét Kara sem vildi ekki tjá sig um réttmæti leikbannsins.

„Ég er ekki í aðstöðu til þess að fara dæma um það hvort dómurinn sér réttur, of vægur eða of strangur. Mér finnst þetta ofboðslega leitt en við þurfum bara að vinna okkur út úr þessu sem lið," segir Margrét Kara.

„Ég er ekki búin að sjá þetta myndband en ég viðurkenni alveg að ég sló til hennar og braut illa af mér," viðurkenndi Margrét Kara en hún sagðist ekkert vita af því að María Lind hafi kært hana til lögreglunnar. Hún segist ekki hafa gert svona áður.

„Það er ekki minn tilgangur í körfubolta að slá til annarra leikmanna því ég reyni að spila eftir minni bestu getu og ná árangri með liðinu mínu," segir Margrét Kara.

„Ég gerði þetta ekki viljandi og mér fannst of strangt tekið til orða í lýsingu dómara á atvikinu. Ég var aldrei að ráðast á hana eða eitthvað svoleiðis og ég sé mikið eftir þessu. Þetta gerðist í einhverju bræðikasti í hita leiksins og annað eins hefur nú skeð," sagði Margrét Kara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×