Innlent

Enn ekkert vitað hvað olli áverkunum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Enn hafa engar vísbendingar fundist um hvað olli því að kona fannst með alvarlega áverka í bifreið við Einholt í Reykjavík þann 27. febrúar.

Mikið var fjallað um málið í fréttum í gær en sú umfjöllun hefur engum haldbærum vísbendingum skilað til lögreglu.

Árni Vigfússon, lögreglumaður hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að málið verði áfram til skoðunar en það sé erfitt viðureignar. „Það veit enginn hvað gerðist þarna á milli og enginn hefur gefið sig fram sem hefur séð hana," segir Árni.

---------

Viðbót kl. 17:49

Eftir að fréttin birtist fyrst hafði aðstandandi stúlkunnar samband og sagði að skýrslur lækna við útskrift konunnar af sjúkrahúsi bendi til þess að konan hafi orðið fyrir alvarlegri líkamsárás.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×