Innlent

Ölvaður, dópaður og próflaus ökumaður skemmdi fjóra bíla

Ölvaður, dópaður og próflaus ökumaður ók á jeppa sínum utan í fjóra kyrrstæða og mannlausa bíla við Hverfisgötu í Hafnarfirði um miðnætti, síðan á ljósastaur og stöðvaðist loks á rammgerum garðbekk.

Þar handsamaði lögregla manninn eftir að vitni að akstri hans hafði kallað hana á vettvang. Jeppinn er stór skemmdur og hinir bílarnir mismunandi mikið.

Þá var ljósastaurinn svo laskaður að lögregla kallaði út menn frá rafveitunni til að aftengja hann. Ökumaðurinn gistir nú fangageymslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×