Innlent

Bílvelta við Barónsstíg

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bílveltan varð á gatnamótum Hverfisgötu og Barónsstígs.
Bílveltan varð á gatnamótum Hverfisgötu og Barónsstígs.

Bíll valt á hliðina við árekstur tveggja bíla á gatnamótum Hverfisgötu og Barónsstígs rétt fyrir klukkan níu í kvöld.

Tveir menn, úr sitthvorum bílnum, voru fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsl en einn maður slapp ómeiddur. Nærliggjandi götum var lokað um stund eftir að áreksturinn varð.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×