Kjell Inge Røkke hvetur til meiri olíuleitar við Noreg 28. mars 2011 08:54
Aðaleigandi Aker Exploration, Kjell Inge Røkke, sem sótti um að fá að leita að olíu á íslenska Drekasvæðinu fyrir tveimur árum, segir að stórauka verði olíuleit við Noreg. Í opnu bréfi í ársskýrslu Aker-samsteypunnar lýsir Røkke, sem er einn ríkasti maður Noregs, áhyggjum sínum um að ekki sé leitað nóg í norska landgrunninu. Hann tekur til samanburðar olíuleit meðfram ströndum Bretlands, sem hafi aukist verulega. Røkke er sjálfur stjórnarformaður í fyrirtækjum sem þótt hafa hvað djarftækust í olíuleit við Noregsstrendur en mátt þola vonbrigði með árangurinn á undanförnum árum. Þrátt fyrir þetta segist Røkke bjartsýnn og telur að milljónir tunna bíði eftir því að finnast. Fyrirtæki Røkkes, Aker Exploration, var annað tveggja fyrirtækja sem lagði inn umsókn um leit á Drekasvæðinu í fyrsta útboði íslenskra stjórnvalda fyrir tveimur árum. Fyrirtækið dró hins vegar umsóknina til baka og bar við breyttri stefnumörkun. Íslensk stjórnvöld áforma nýtt Drekaútboð síðar á þessu ári.
Mest lesið Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Neytendur Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Neytendur Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Neytendur Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Susan Wojcicki er látin Viðskipti erlent Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Viðskipti innlent Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Atvinnulíf Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira