Innlent

Fangelsisrefsing fyrir skjalafals

Maður frá Kongó framvísaði fölsuðu vegabréfi í Leifsstöð í byrjun mánaðarins. Fréttablaðið/Valli
Maður frá Kongó framvísaði fölsuðu vegabréfi í Leifsstöð í byrjun mánaðarins. Fréttablaðið/Valli
Rúmlega tvítugur karlmaður, með ríkisfang í Kongó, hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir skjalafals.

Maðurinn framvísaði í byrjun mánaðarins fölsuðu vegabréfi við vegabréfseftirlit á Keflavíkurflugvelli. Hann sýndi landamæralögreglu þar falsað franskt vegabréf.

Maðurinn játaði brot sitt skýlaust. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×