Ekkert bólar á Orkuveiturannsókn SB skrifar 24. maí 2011 12:52 Jón Gnarr
Rannsókn á starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur er enn ekki hafin en borgarstjóri lofaði henni þegar tilkynnt var um milljarðalán Reykjavíkurborgar til Orkuveitunnar fyrir um tveimur mánuðum síðan. Ekki hefur enn tekist að skipa í nefndina, að sögn Dags B. Eggertsson. Nú eru tæpir tveir mánuðir síðan Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, sagði fyrirtækið í raun gjaldþrota. Tilkynnt var um víðtækar björgunaraðgerðir þann 28. mars. Borgarráð samþykkti 12 milljarða króna víkjandi lán til fyrirtækisins, eignir skyldu seldar, fjárfestingum frestað og álögur á viðskiptavini hækkaðar. Á sama tíma boðaði Jón Gnarr, borgarstjóri, að ráðist yrði í víðtæka rannsókn á því hvað fór úrskeiðis í rekstri Orkuveitunnar. Í ræðu sinni á fundi borgarstjórnar sagðist Jón leggja á það mikla áherslu að flýta vinnu við að skipa nefnd óháðra sérfræðinga sem rannsaki orsakir þeirrar fjárhagslegu stöðu sem Orkuveita Reykjavíkur hafi ratað í. Þessi rannsókn var sögð nauðsynleg til að skapa frið um fyrirtækið, eyða tortryggni og auka traust. Á blaðamannafundinum þann 28. mars sagði Jón: "Við ætlum að reyna að hrinda þessari rannsókn í framkvæmd svo fljótt sem hægt er." Ekkert bólar hins vegar á hinni boðuðu rannsókn. Í svari við fyrirspurn sem fréttastofa sendi Degi B. Eggertssyni sagði hann vinnuna við að skipa starfshópinn taka lengri tíma en ætlað var. Kallað hafi verið eftir tilnefningum frá háskóla Íslands og þær tilnefningar þurfi svo að bera undir aðra flokka í borgarstjórn. Þá væri flókið að finna endurskoðanda sem ekki hefði tengsl við Orkuveituna en öll helstu endurskoðendafyrirtæki hafi á einhverjum tímpunkti starfað fyrir fyrirtækið. Dagur sagði eðlilegt að undirbúningur við mál af þessari stærðargráðu taki tíma enda þurfi að vanda hvert skref.
Mest lesið Starbucks kemur ekki til Íslands Innlent Starmer heldur neyðarfund vegna óeirðanna Erlent Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Ofurölvi vistaður í fangaklefa Innlent Dregur úr vindi með morgninum Veður Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Erlent Fleiri fréttir Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Aukin skriðuhætta og breytt hlutverk kirkjunnar Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjá meira