Isavia ohf. hefur stofnað sérstakan sjóð til að styðja björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Tilgangur sjóðsins er að efla hópslysaviðbúnað björgunarsveita félagsins.
Markmið verkefnisins er að björgunarsveitir, og þar með viðbúnaðarkerfi landsins, séu ávallt sem best búnar til þess að takast á við hópslys.
Verkefnið er til þriggja ára og ráðgerir Isavia að styrkja björgunarsveitirnar um fimm milljónir króna í ár og átta milljónir árin 2012 og 2013, samtals um 21 milljón króna. - shá

