Innlent

Sýna Færeyjum stuðning í verki

Félagarnir á góðri stundu.
Félagarnir á góðri stundu.
Vinirnir og söngvararnir Jógvan Hansen og Friðrik Ómar ætla að standa fyrir samstöðutónleikum sunnudaginn 11. desember í Hörpu.

Ætlunin er að safna fé sem renna mun til björgunarfélaga í Færeyjum.

Í tilkynningu frá tvímenningunum segir að með þessu sé ætlunin að sýna Færeyingum stuðning í verki og senda þau skilaboð að Íslendingum se ekki sama.

Gríðarleg eyðilegging var í Færeyjum í óveðri sem gekk yfir eyjarnar nýverið.

Tónleikunum verður sjónvarpað beint á RÚV, og mögulega einnig í Færeyjum. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×