Innlent

Stefnt að því að ýta bensíni til hliðar

Flutningaskipið BBC France lagði úr höfn með tvö hundruð tonn af búnaði fyrir metanólverksmiðju CRI um miðjan maí. Það lagðist að bryggju í fyrrakvöld. Þyngstu einingarnar vega 42 tonn. Reiknað er með því að fara þrjár ferðir með búnaðinn.Fréttablaðið/vilhelm
Flutningaskipið BBC France lagði úr höfn með tvö hundruð tonn af búnaði fyrir metanólverksmiðju CRI um miðjan maí. Það lagðist að bryggju í fyrrakvöld. Þyngstu einingarnar vega 42 tonn. Reiknað er með því að fara þrjár ferðir með búnaðinn.Fréttablaðið/vilhelm
Stefnt er að því hjá nýsköpunarfyrirtækinu Carbon Recycling International (CRI) að framleiða vistvænt eldsneyti úr metanóli fyrir fjölorkubíla og draga úr bensínnotkun hér á næstu tveimur árum. Ekki eru líkur á að verðið á metanóllítranum verði mikið lægra en á bensíni. „Menn eru að reyna að finna aðra orkugjafa en bensín því það verður sífellt flóknara mál að sjá heiminum fyrir því,“ segir Benedikt Stefánsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá CRI.

Vinna er nú í fullum gangi við byggingu fyrstu verksmiðju fyrirtækisins við Svartsengi á Reykjanesi. Gert er ráð fyrir að prófanir á verksmiðjunni geti hafist í lok mánaðar og þrjátíu manns muni vinna hjá fyrirtækinu, mest tæknimenntað fólk. Áætlað er að verksmiðjan geti framleitt fimm milljón lítra af endurnýjanlegu metanóli á ári.

Um fimmtíu manns vinna við flutninga á tækjum og búnaði úr skipi sem kom frá Bandaríkjunum og lagði við bryggju í Helguvíkurhöfn á þriðjudagskvöld. Flutningar á búnaðinum hófust í gær. Heildarþungi hans er tvö hundruð tonn. Stærsta einingin vegur 42 tonn og er 23 metra há, sem er álíka hæð og á átta hæða blokk.

CRI hefur þróað aðferð til að framleiða vistvænt metanól úr koltvísýringi sem fenginn er úr jarðgufunum úr túrbínum orkuversins í Svartsengi. Metanólið verður blandað við bensín og má setja það á venjulegar bílvélar. Hugsanlegt er að blandan komi á markað í haust. Í fyrstu er gert ráð fyrir að aðeins þrjú prósent af metanóli fari saman við 97 prósent af bensíni.

„Þetta er fyrsta skrefið í þá átt að framleiða miklu meira af metanóli,“ segir Benedikt. Hann bætir við að í Bandaríkjunum og Evrópu sé áhersla lögð á framleiðslu fjölorkubíla, sem geti gengið fyrir blöndu alkóhóls og bensíns í nánast hvaða hlutföllum sem er. Því megi auka hlutfall metanóls í bensínlítranum, jafnvel allt upp undir 85 prósent eins og gert sé með etanól í Svíþjóð. Nokkur þúsund slíkir bílar eru þegar á götunum hér.

„Við erum að velta fyrir okkur að þróa sambærilega blöndu úr metanóli,“ segir hann. Kaupa þarf sérstakan fjölorkubíl þegar hlutfall metanólsins eykst. Þá þarf CRI að vinna með olíufélögunum að rannsóknum og þróun á því og stærri verksmiðju. Viðræður standa þegar yfir við Landsvirkjun um byggingu stærri verksmiðju við Kröflu.

jonab@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×