Innlent

Sofnaði og keyrði út í sjó

Akureyri. Myndin er úr safni.
Akureyri. Myndin er úr safni.
Karlmaður á þrítugsaldri sofnaði undir stýri með þeim afleiðingum að hann keyrði út í sjó við Leiruveg gegnt flugbrautinni á Akureyri um eittleytið í nótt.

Tveir voru í bílnum en hvorugur slasaðist. Bifreiðin var fljótlega dregin upp úr sjónum og er hún talin óskemmd.

Slökkviliðið á Akureyri var kallað út í gærkvöldi vegna ammoníaksleka í húsakynnum fiskvinnslufyrirtækisins ÚA, en þar hafði þétting á leiðslu gefið sig.

Lekinn var ekki mikill og gekk greiðlega að stöðva hann. Engan sakaði vegna lekans. Nóttin virðist annars hafa verið róleg hjá helstu lögregluembættum landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×