Viðskipti innlent

Treystir því að Páll hafi verið ráðinn á faglegum forsendum

Höskuldur Kári Schram skrifar
Steingrímur. J. Sigfússon.
Steingrímur. J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segist treysta því að faglega hafi verið staðið að ráðningu Páls Magnússonar í starf forstjóra Bankasýslu ríkisins. Steingrímur ætlar hins vegar að óska eftir upplýsingum um ráðningarferlið.

Fjórir sóttu um starf forstjóra bankasýslu ríkisins þegar staðan var auglýst til umsóknar í ágústmánuði síðastliðnum.

Páll Magnússon var ráðinn í starfið en eins og fram kom í fréttum stöðvar tvö á sunnudag er Páll með mun minni reynslu af störfum fyrir fjármálastofnanir en hinir umsækjendurnir þrír.

Páll var aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur, fyrrverandi viðskiptaráðherra, þegar bankarnir voru einkavæddir á sínum tíma. Páll er með BA próf í Guðfræði og MPA í opinberri stjórnsýslu.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segist treysta því að faglega hafi verið staðið að ráðningu Páls í starfið en bankasýsla ríkisins heyrir undir fjármálaráðuneytið.

„Nú er það þannig að hún er ekkert í mínum höndum. þannig var um málið búið með lögum héðan frá alþingi að bankasýslan starfar alveg sjálfstætt og ráðherra má ekki og á ekki hafa nein áhrif á daglegan rekstur og störf þar, það er á ábyrgð stjórnar og ég geri ráð fyrir því að það sé hægt að afla gagna og fá upplýsingar um þennan ráðningarferil og þá fara menn bara yfir það en þangað til ég hef aðrar upplýsingar í höndum þá vona ég og treysti að þarna hafi einfaldlega verið staðið faglega að málum," segir Steingrímur.

„Þú hlýtur að hafa einhverja persónulega skoðun á þessu. nú sjá margir og halda margir að hér sé á ferðinni einhver bitlingur?" spyr fréttamaður.

„Allavega er það ekki til einhvers þekkts félaga í Vinstri grænum. Svo mikið er víst. Ég er ekki að hygla flokksfélaga. Auðvitað er veruleikinn sá að ég kom ekki nálægt þessu. Ég hafði engin afskipti af þessu og frétti af þessu eins og hverjir aðrir og þannig á að það að vera samkvæmt lögunum," svarar Steingrímur.

Steingrímur ætlar að óska eftir upplýsingum um ráðningarferlið.

„Eins og gjarnar gerist þá fáum við upplýsingar um það hvernig málum miðar hjá bankasýslunni eins og fleiri stofnunum sem heyra undir ráðuneytið þó að hún sé sjálfstæð og við höfum ekki afskipti af henni," segir Steingrímur að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×