Ólög eyða Lúðvík Bergvinsson skrifar 8. október 2011 11:00 Forsenda jafnréttis og gagnkvæmrar virðingar í samfélaginu er að allir séu jafnir fyrir lögunum. Kjörorð lögreglu „með lögum skal land byggja en ólögum eyða“ undirstrikar mikilvægi þessa. Í þessu ljósi er athyglisvert hvernig löggjafinn tók á skýlausum brotum lánafyrirtækja á vaxtalögum, en í 17. gr. vaxtalaga eru skýr fyrirmæli um að refsa skuli þeim sem veita ólögmæt gengistryggð lán. Vandséð er hvernig fjármálafyrirtækin geta útskýrt lögbrotið en ljóst er að fyrirtækin geta ekki borið fyrir sig vanþekkingu, því í umsögn samtaka fjármálafyrirtækja til Alþingis við afgreiðslu vaxtalaga á sínum tíma, kom fram það sjónarmið þeirra að yrði frumvarpið að lögum væri fjármálafyrirtækjum óheimilt að veita gengistryggð krónulán. Frumvarpið varð að lögum. Bannið tók gildi. Þrátt fyrir það veittu fjármálafyrirtækin ólögmæt gengistryggð lán. Því verður ekki annað séð en að brotavilji fjármálafyrirtækjanna hafi verið einbeittur í þessu máli. Viðbrögð löggjafansViðbrögð löggjafans við niðurstöðum dómstóla um ólögmætið verða að teljast afar sérstæð. Í stað þess að brotin væru rannsökuð og fyrir þau refsað, eins og jafnan á að gerast þegar lögbrot eru framin, greip löggjafinn inn í atburðarásina og samþykkti lög nr. 151/2010 sem fólu í sér uppgjörsreglur vegna ólögmætra lána til einstaklinga, sem gerðu lánin jafnvel enn verðmeiri fyrir hina brotlegu lánveitendur en áður. Með lögunum voru lánveitendunum veittar áður óþekktar heimildir til að endurreikna og innheimta afturvirkt ólögmæt lán og jafnvel vaxtareikna og vaxtavaxtareikna á nýjan leik fullgreiddar kröfur. Það er afar vandséð að lögin fái samrýmst eignarréttarvernd stjórnarskrár eða almennum reglum um neytendavernd, eins og margir umsagnaraðila bentu á við meðferð málsins á Alþingi. Enn fjarlægara er að það fáist samrýmst því sem kalla má almenna réttlætiskennd fólks að aðili sem brýtur gegn lögum standi uppi í jafngóðri eða betri stöðu en áður. Í þessu ljósi eru yfirlýsingar um miklar afskriftir fjármálafyrirtækja í þágu einstaklinga og heimila vegna endurútreiknings og niðurfærslu lána afar undarlegar, því ekkert slíkt hefur átt sér stað. Er þar að auki í besta falli villandi að tala yfirleitt um afskriftir þegar gerð eru upp lán sem lánveitendur hafa veitt með ólöglegum hætti gegn betri vitund. Nauðsyn aðgerða stjórnvaldaÞegar þetta er haft í huga þurfa hörð viðbrögð og reiði almennings að undanförnu ekki að koma á óvart. Hrun fjármálakerfisins, fall krónunnar og mikil verðbólga virkaði líkt og lottóvinningur fyrir eigendur verðtryggðra og gengistryggðra skuldabréfa. Aftur á móti leiddi stökkbreyting lánanna til þess að stór hluti landsmanna hefur horft á eigið fé sitt hverfa og mörg heimili eru komin í algert þrot. Það er auðvelt að færa sannfærandi rök fyrir því að hrun fjármálakerfisins sé raunverulegur forsendubrestur í lánasamningum kröfuhafa og skuldara. Þessi forsendubrestur og sú staða sem uppi er í samskiptum kröfuhafa og skuldara í dag slítur á endanum í sundur friðinn í samfélaginu, ef ekkert verður að gert, því staðan mun aðeins versna úr þessu. Það er því afar mikilvægt að löggjafinn komi til móts við réttmætar kröfur um að umrædd ólög um endurútreikning lána verði afnumin hið fyrsta. Bænagerðir til kröfuhafa um bætta hegðun duga ekki. Löggjafinn afhenti þeim vopnið og verður nú að taka það til baka. Jafnframt verða stjórnvöld, sem neyðarúrræði, að grípa inn í og færa neysluverðsvísitöluna nær því sem hún var þegar fjármálakerfið hrundi, hvort sem niðurstaðan að lokum verður sú að afnema verðtryggingu eða ekki. Sem fyrstu skref væru slíkar aðgerðir líklegar til að skapa einhverja samstöðu og sátt meðal borgaranna og vekja upp raunverulegan vilja til endurreisnar íslensks samfélags eftir áfall hrunsins. Sáttin mun eðlilega kosta eitthvað, en aðgerðaleysi mun kosta meira. Sátt er alger forsenda viðsnúnings úr þeirri stöðu sem íslenskt samfélag er statt í í dag. Alþingismenn hafa vald til að framkvæma þessar breytingar. Þeirra er að framkvæma, því aðrir hafa ekki það vald. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 19.10.24 Halldór Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Ekki lofa einhverju sem þú ætlar ekki að standa við. Ágústa Árnadóttir Skoðun Kæru vinir og stuðningsfólk Halla Hrund Logadóttir Skoðun Að taka réttindi af einum til að selja öðrum Vala Árnadóttir Skoðun Goðsögnin um að fara áfram Matthildur Björnsdóttir Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon Skoðun Kennarastarfið Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir Skoðun Að halda niðri launum og lifa á loftinu Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Vá! Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Að taka réttindi af einum til að selja öðrum Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Kæru vinir og stuðningsfólk Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Goðsögnin um að fara áfram Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Ekki lofa einhverju sem þú ætlar ekki að standa við. Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Kennarastarfið Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir skrifar Skoðun Fullveldi Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Að halda niðri launum og lifa á loftinu Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Vá! Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun „Hver sagði þér að heimurinn væri réttlátur?“ Davíð Bergmann skrifar Skoðun Ert þú ég eða verð ég þú Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar Skoðun Ákall um annars konar hagkerfi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Lögbrot íslenskrar stjórnsýslu og dómstóla Huginn Þór Grétarsson skrifar Skoðun Háskóli Íslands styður þjóðarmorð Elí Hörpu og Önundarbur skrifar Skoðun Stjórnvöld bregðist við eggjaskorti með afnámi tolla Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Í hvernig samfélagi viljum við búa í? Ólafur H. Ólafsson skrifar Skoðun Endurhugsum íslenskt skólakerfi: Ný sýn á nám og kennslu Inga Sigrún Atladóttir skrifar Skoðun Þankar um framtíð landsins okkar Árný Björg Blandon skrifar Skoðun Er Landsvirkjun til sölu? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar pólitík hindrar framför Hjörtur Sveinsson skrifar Skoðun Nú á lýðræðið næsta leik Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Skólinn, sem við kjósum að muna. Samfélagsrýni með rjómabragði Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Fær þitt barn kennslu í fjármálalæsi? Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Dagur í grunnskóla Hulda María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Áskorun - Þingmenn, sýnið kjósendum stórhug skrifar Skoðun TikTok, upplýsingaóreiða og stjórnvöld Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Taktu þátt í lýðræðinu með okkur Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Neyðarmóttakan; fyrir þolendur framhjáhalds Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun
Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon Skoðun
Skoðun Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon skrifar
Skoðun Skólinn, sem við kjósum að muna. Samfélagsrýni með rjómabragði Ragnar Þór Pétursson skrifar
Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun
Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon Skoðun