Skoðun

Fær þitt barn kennslu í fjármálalæsi?

Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Í sumar birti OECD ráðleggingar samhliða niðurstöðum PISA prófs í fjármálalæsi meðal 15 ára ungmenna í tuttugu löndum víða um heim. Þar benti OECD á að of algengt sé að börn og ungmenni á þessum aldri byrji að feta sig á sviði sinna persónulegu fjármála án þess að hafa grunnskilning á hvað felst í fjármálum einstaklingsins, t.d. með verslun á netinu og þátttöku á vinnumarkaði. Þá séu aðstæður á heimilum til að fá þessa fræðslu misjafnar.

OECD: Öll börn ættu að fá kennslu í fjármálalæsi óháð félagslegri stöðu eða uppruna

OECD leggur því áherslu á að kennsla um fjármál fari fram í skólum og áhersla á að kennslan þurfi að vera markviss og samræmd. OECD telur hlutverk stjórnvalda mikilvæg til að bæta fjármálalæsi, t.d. með því að móta heildræna landsstefnu í fjármálalæsi.

Því hvetur OECD stjórnvöld allra ríkja til þess að sjá til þess að ungt fólk fái kennslu í fjármálalæsi. Það sé liður í að jafna stöðu barna sem hafa ólíkan bakgrunn og búa misvel við að fá fræðslu heima fyrir á þessu sviði.

En fær þitt barn kennslu um fjármál í sínum skóla?

SFF hafa í fjölmörg ár vakið athygli á mikilvægi þess að kenna öllum börnum um fjármál í grunnskólum, það verði gert að skyldu og kennt með samræmdum og heildrænum hætti. Í dag er staðan þannig að í sumum skólum er fjármálalæsi skyldufag, í öðrum valfag en enn er það svo að í mörgum skólum fá börn enga kennslu í fjármálalæsi.

Í nýlegri könnun sem Gallup vann fyrir SFF kom fram að einungis 11% ungs fólks sagðist hafa lært fjármálalæsi en á sama tíma sögðu um 90% aðspurðra hafa viljað læra meira um fjármál í grunnskóla.

Læra um fjármál á heimilum eða netinu en vilja læra um þau í skólum

Samkvæmt könnun Gallup töldu jafnframt flestir aðspurðra að þeir hefðu fengið sína fjármálafræðslu hjá foreldrum og svo á netinu, fjölmiðlum eða samfélagsmiðlum þar sem áreiðanleiki upplýsinganna getur verið misjafn.

Þegar hins vegar spurt var hvar telur þú heppilegast að fólk læri um fjármál og peninga töldu flestir eða 74% aðspurðar, að fjármálafræðslan ætti helst heima í grunn- og framhaldsskólum.

Þá bentu niðurstöðurnar til þess að þeir sem hefðu meira fjármálalæsi væru ólíklegri til að hafa lent í fjárhagserfiðleikum og vanskilum en þeir sem höfðu minni þekkingu á fjármálum.

Fyrstu sporin í fjármálum geta markað brautina

Íslensk ungmenni eru fyrr á ferðinni en víða erlendis að fá fyrsta vísi að fjárhagslegu sjálfstæði. Þau byrja snemma að vinna og fá tekjur. Á sama tíma er mikil samfélagspressa á ungu fólki og umhverfi þeirra hefur tekið miklum breytingum m.a. vegna tækniframfara. Það er hægt að skuldbinda sig, með jákvæðum (sparnaður) eða neikvæðum (illa ígrunduð skuldsetning) hætti á nokkrum mínútum í síma eða tölvu. Áreitið á ungu fólki er mikið og á þeim dynja auglýsingar og tilboð sem auðvelt getur verið að falla fyrir.

Ef börn byrja að misstíga sig í fjármálum þá getur verið afar þungt að vinna sig upp úr skuldum. Það hefur áhrif á sjálfstraust þeirra og jafnvel tækifæri til framtíðar.

Við hjá SFF höfum reynt að gera það sem er á okkar færi til að efla fræðslu tengda fjármálalæsi hér á landi og höfum við undanfarin tíu ár haldið úti fræðsluvettvanginum Fjármálaviti með stuðningi Landssamtaka lífeyrissjóða. Í gegnum Fjármálavit höfum við meðal annars dreift yfir 18.000 eintökum af kennslubókum um fjármál einstaklinga til kennara og nemenda í grunn- og framhaldsskólum, boðið upp á námskeið og námsefni fyrir kennara sem þess óska og haldið árlega Fjármálaleika, landskeppni grunnskóla í fjármálalæsi.

Við höfum hins vegar áhyggjur af þeim sem fá ekki leiðsögn foreldra eða annarra í nærumhverfi og heldur ekki í skólakerfinu. Við teljum það afar mikilvægt til að jafna stöðu allra barna er kemur að því að byggja upp heilbrigðan fjárhag óháð bakgrunni foreldra eða skólahverfa.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu.




Skoðun

Sjá meira


×