Subway hagnaðist um 124 milljónir 20. desember 2011 10:00 Skúli Gunnar Sigfússon stofnaði fyrsta Subway-staðinn á Íslandi 1994. Staðirnir eru nú orðnir 20 talsins. Fréttablaðið/Anton
Stjarnan ehf., sem er með einkaleyfi á Íslandi fyrir veitingahúsakeðjunni Subway, hagnaðist um 124,3 milljónir króna í fyrra. Það er rúmum fimmtán milljónum króna meiri hagnaður en árið 2009 þegar félagið hagnaðist um 109 milljónir króna. Stjarnan er í 100% eigu félags Skúla Gunnars Sigfússonar athafnamanns. Stjarnan opnaði nýverið tuttugasta Subway-staðinn á Íslandi. Alls nema eignir Stjörnunnar 436 milljónum króna og jukust þær um 152 milljónir króna á milli ára. Hækkunin er nánast einvörðungu vegna þess að krafa á tengd félög jókst um 146 milljónir króna frá árinu 2009. Tengdir aðilar eru Leiti eignarhaldsfélag, sem er að fullu í eigu Skúla Gunnars. Það félag hefur ekki skilað ársreikningi fyrir síðasta ár. Stjarnan skuldaði 128,4 milljónir króna um síðustu áramót. Þar af voru 44,9 milljónir króna skuldir við lánastofnanir. Á meðal annarra eigna Skúla er 26,32% hlutur í Nautafélaginu ehf., sem á og rekur Hamborgarafabrikkuna. Aðrir eigendur þess félags eru Jóhannes Ásbjörnsson og Sigmar Vilhjálmsson, sem eiga 36,84% hlut hvor. Nautafélagið hagnaðist um tæpar 35 milljónir króna á árinu 2010. Á grundvelli þeirrar afkomu ákvað stjórn félagsins að greiða 30 milljónir króna út í arð til hluthafa á árinu 2011. - þsj
Mest lesið Kaupin á TM: „Þetta mun einfaldlega ganga í gegn“ Viðskipti innlent „Óumflýjanlegt“ kílómetragjald kynnt í vikunni Neytendur Fleiri hlutastörf: Ríkið greiðir nú þegar 75% launa sem mótframlag Atvinnulíf Ofurstinn flytur til Texas Viðskipti erlent Árstekjur starfsmanna lækkuðu um fimmtung vegna loðnubrests Viðskipti innlent „Tugir kúabúa gætu þurft að hætta“ Viðskipti innlent Nýir eigendur ætla að „troðfylla búðina af nauðsynjavöru” Viðskipti innlent Hulda ráðin framkvæmdastjóri Nox á Íslandi Viðskipti innlent Loforð um milljarða í vasa neytenda „fuglar í skógi“ Neytendur „Það kæmi mér verulega á óvart ef þessi samruni yrði að veruleika“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupin á TM: „Þetta mun einfaldlega ganga í gegn“ Árstekjur starfsmanna lækkuðu um fimmtung vegna loðnubrests „Tugir kúabúa gætu þurft að hætta“ „Það kæmi mér verulega á óvart ef þessi samruni yrði að veruleika“ Hulda ráðin framkvæmdastjóri Nox á Íslandi Bætast í eigendahóp Markarinnar Þriðjungur flugvéla Play leigðar út í næstum þrjú ár Fjallað um strandveiðar á Alþingi í sérstakri umræðu Samruninn skili ekki aukinni samkeppni Níu milljarða tap en staðan styrkist Fetar ekki í fótspor forvera sinna hvað ÁTVR varðar „Það er verið að vernda stórkaupmenn“ Nýir eigendur ætla að „troðfylla búðina af nauðsynjavöru” Undirbúa söluna áfram þrátt fyrir yfirlýsingu Arion banka Áttar sig ekki á bjartsýni Arion Níu matvælaframleiðendur hljóta styrk Guðjón og Ómar Ingi unnu Gulleggið Milljarðaviðskipti í bönkunum í morgunsárið Bankarnir áður svikið neytendur Bilun hjá Landsbankanum Ekki fjárhagslegur grundvöllur fyrir tveimur vínbúðum á Akureyri Bankastjórarnir fengu 260 milljónir króna Neytendur beri kostnað þess að reka þrjá stóra banka Ný ríkisstjórn sé að efla erlenda mjólkurframleiðslu Reikningur tengdur dularfullri Grindavíkur-mynt horfinn sporlaust Samruninn geti skilað auknum sparnaði til neytenda Bankarnir byrji í brekku Þröstur tekur við Bændablaðinu Árni Friðriksson í loðnu norður af Vestfjörðum „Fyrstu viðbrögðin voru þetta er ekki hægt“ Sjá meira