Sport

NFL: Tebow tapaði - Denver réð ekki við Tom Brady og félaga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tom Brady og Tim Tebow.
Tom Brady og Tim Tebow. Mynd/AP
Sigurganga Tim Tebow og liðsfélaga hans í Denver Broncos í ameríska fótboltanum endaði í gær þegar liðið tapaði 23-41 á heimavelli á móti New England Patriots. Topplið Green Bay Packers tapaði líka sínum fyrsta leik á tímabilinu.

Denver Broncos hafði unnið sex leiki í röð þar af þá fjóra síðustu eftir að hafa komið til baka á ævintýralegan hátt í fjórða leikhluta.

Tim Tebow, leikstjórnandi liðsins, var óvænt búinn að stela sviðsljósinu með einstökum sigurvilja og hann skoraði sjálfur snertimark í fyrstu sókn í leiknum í gær. Denver komst í 16-7 í byrjun leiks og allt leit vel út.

New England Patriots liðið fór þá í gang og leit ekki til baka eftir það. Patriots vann þarna sinn sjötta leik í röð og tryggði sér með þessum sigri sigur í AFC Austur riðlinum og þar með sæti í úrslitakeppninni.

„Þetta var mjög góður dagur fyrir okkur. Það var allt á öðrum endanum í byrjun en við sýndum mikinn andlegan styrk með að snúa þessu okkur í vil," sagði Tom Brady, leikstjórnandi New England Patriots.

Green Bay Packers var búið að vinna þrettán fyrstu leiki sína á tímabilinu og höfðu ekki tapað leik síðan í desember 2010 þegar þeir heimsóttu Kansas City Chiefs sem var nýbúið að reka þjálfara sinn og hafði tapað 5 af síðustu 6 leikjum sínum.

Kansas City Chiefs vann mjög óvæntan 19-14 sigur og endaði 19 leikja sigurgöngu Packers sem eru ríkjandi NFL-meistarar.

Indianapolis Colts fagnaði líka sínum fyrsta sigri á tímabilinu þegar liðið vann Tennessee Titans 27-13.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×