Innlent

Ofbeldismaður framseldur til Póllands

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hæstiréttur staðfesti framsalsúrskurð yfir manninum.
Hæstiréttur staðfesti framsalsúrskurð yfir manninum.
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um framsal á pólskum karlmanni til heimalands síns.

Maðurinn hafði gerst sekur um líkasmárás í heimalandi sínu, ásamt öðrum manni, en komið svo til Íslands. Auk þess hótaði hann tveimur mönnum lífláti og að kveikja í húsi þeirra þannig að mennirnir óttuðust um líf sitt og heilbrigði.

Maðurinn var upphaflega dæmdur í 10 mánaða skilorðsbundið fangelsi en síðan var ákveðið að hann skyldi sitja af sér dóminn vegna þess að hann greiddi ekki brotaþola skaðabætur sem hann hafði verið dæmdur til að greiða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×