Gjaldeyrishöftin á Íslandi samræmast reglum ESA Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. desember 2011 10:00
Gjaldeyrishöftin á Íslandi eru í samræmi við reglur um EES, samkvæmt nýjum dómi EFTA dómstólsins sem var birtur í dag. Í kjölfar erfiðleika íslenska fjármálakerfisins síðla árs 2008, innleiddu íslensk stjórnvöld reglur um gjaldeyrishöft, þar sem meðal annars var kveðið á um tímabundið bann við innflutningi íslenskra króna. Pálmi Sigmarsson, sem er íslenskur ríkisborgari búsettur í Bretlandi, sótti um undanþágu til Seðlabanka Íslands frá þessu banni, í því skyni að flytja inn til landsins 16,4 milljónir íslenskra króna sem hann hafði keypt á aflandsmarkaði. Seðlabankinn hafnaði umsókninni og efnahags- og viðskiptaráðuneytið staðfesti þá niðurstöðu með úrskurði. Pálmi bar ákvörðun Seðlabankans undir Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem hann heldur því fram að ákvörðunin sé bæði brot á íslenskum lögum og ósamrýmanleg reglum EES-samningsins um frjálsa fjármagnsflutninga. Héraðsdómur Reykjavíkur leitaði svo eftir ráðgefandi áliti frá EFTA dómstólnum um túlkun á 43. grein EES-samningsins, þar sem heimild er veitt til að víkja frá reglum um frjálst flæði fjármagns. EFTA dómstóllinn benti á að alvarlegar aðstæður hefðu skapast á Íslandi eftir hrun fjármálakerfisins haustið 2008. Við þessar aðstæður væru uppfyllt efnisleg skilyrði fyrir því að grípa til verndarráðstafana samkvæmt umræddri grein í EES samningnum. Þá taldi dómstóllinn jafnframt að engin gögn hefðu verið lögð fyrir dómstólinn sem bentu til þess að úrræðin sem gripið var til hafi brotið í bága við meðalhófsregluna.
Mest lesið Sjötíu sagt upp og fyrirtækið tekið til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Ísland ekki á spjaldi Trumps en fær samt tíu prósenta toll Viðskipti erlent Björgólfur tapaði 150 milljörðum milli ára Viðskipti innlent Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Viðskipti erlent Bæði vonbrigði og léttir Viðskipti innlent Einsleitni er ekki málið: „Ætlum við að gera þetta aftur?“ Atvinnulíf Sólveig Ása nýr framkvæmdastjóri Krafts Viðskipti innlent Bakkavör metin á 200 milljarða í yfirtöku Viðskipti innlent Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Samstarf Stjórnin telur RÚV enn vera of skuldsett Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta kemur eins vel við okkur og hægt er“ Bæði vonbrigði og léttir Sjötíu sagt upp og fyrirtækið tekið til gjaldþrotaskipta Jón Haukur ráðinn svæðisstjóri Ceedr Sólveig Ása nýr framkvæmdastjóri Krafts Björgólfur tapaði 150 milljörðum milli ára Stjórnin telur RÚV enn vera of skuldsett Bakkavör metin á 200 milljarða í yfirtöku Narfi frá JBT Marel til Kviku Milljarður í afgang í Garðabæ Útflutningur gefur eftir en einkaneyslan stígur fram á sviðið Vilja minnka líkurnar á því að vinna í Lottóinu Besta rekstrarár frá opnun Hörpu Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Deila um þvottahús stöðvar ekki Hreint í bili Eldisfiskur fluttur út fyrir 54 milljarða króna Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Trúir ekki að menn loki fiskvinnslu til að mótmæla veiðigjöldum „Þetta er afnotagjald“ Play komið með flugrekstrarleyfi á Möltu Jón Ólafur í framboði til formanns SA Eigendaskipti hjá Fótbolta.net Feðgarnir nú aftur einu hluthafarnir í Eyri Invest Eyjólfur Árni hættir hjá SA Hagnaðist um tvo milljarða: Ljóst að greinin megi ekki við hækkunum Verðbólga heldur áfram að hjaðna Versta sviðsmyndin sé að lenda á milli Evrópu og Bandaríkjanna í tollastríði Íhuga að sameina lífeyrissjóði „Reiðarslag fyrir þau þorp þar sem stundaðar eru veiðar og vinnsla“ Tollastríðið gæti vel haft áhrif á lífskjör almennings Sjá meira