Innlent

Þrír þjóðhátíðargestir fluttir á sjúkrahús

Þrír þjóðhátíðargestir voru fluttir á sjúkrahúsið í Eyjum í nótt til aðhlynningar. Einn hafði dottið og handlegsbrotnað. Annar hafði meiðst á baki, þagar sparkað var í hann og sá þriðji snérist á fæti.

Húkkaraballið, sem markar upphaf þjóðhátíðar í Eyjum, var í gærkvöldi og að sögn lögreglu var þar færra fólk en í fyrra, en mun meiri erill vegna ölvunar.

Herjólfur fór aukaferðir í nótt, en farþegar í gær og í nótt voru heldur færri en í fyrra, en þá var slegið met þegar hátt í 17 þúsund manns mættu á þjóðhátíðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×