Innlent

Dannebrog í heimsókn í Reykjavíkurhöfn

Danska snekkjan Dannebrog er nú í stuttri heimsókn í Reykjavíkurhöfn. Skipið hefur hér skamma viðdvöl á leið yfir hafið og heldur áfram ferð sinni á sunnudag. Þetta kemur fram á vefsíðu Faxaflóahafna.

Dannebrog er snekkja dönsku konungsfjölskyldunnar og notar Margrét Danadrottning hana oft á sumrin til siglinga og til að hitta þegna sína á Grænlandi en þaðan var snekkjan að koma, þó án drottningarinnar um borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×