Innlent

Tveir á slysadeild eftir líkamsárás á Akureyri

Tveir voru fluttir á slysadeild sjúkrahússins á Akureyri á fimmta tímanum í nótt eftir að maður hafði ráðist á þá og veitti þeim áverka.

Atvikið átti sér stað á Strandgötu og var árásarmaðurinn horfinn þegar lögreglumenn komu á vettvang. Hann er ófundinn og málsatvik eru enn óljós.

Að öðru leiti fór skemmtanahald vel fram í bænum í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×