Viðskipti erlent

Augu allra hvíla á Portúgal í dag

Búast má við að augu allra á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hvíli á Portúgal í dag en þá fer fram útboð á ríkisskuldabréfum fyrir allt að 1,25 milljarða evra til fimm og tíu ára.

Gjaldmiðlamarkaðir reikna með jákvæðri niðurstöðu úr útboðinu þar sem gengi evrunnar hefur verið að styrkjast gagnvart dollaranum í morgun.

Jákvæðni þessi stafar af því að flestir reikna með að Kínverjar muni kaupa stóran hlut af útboðinu á vöxtum sem eru nokkuð undir núverandi 7% vöxtum á portúgölskum skuldabréfum til tíu ára. Til samanburðar má nefna að þýsku viðmiðunarvextirnir á tíu ára bréfum eru nú 2,85%.

Sumir telja að kaup Kínverjanna muni ekki duga til. Þannig slær greiningardeild Nordea bankans því föstu í morgunfréttabréfi sínu að einungis sé tímaspursmál hvenær Portúgalir fái neyðaraðstoð frá ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Sú neyðaraðstoð muni nema á bilinu 50 til 60 milljarða evra.

Jacob Graven aðalhagfræðingur Sydbank sagði í samtali við börsen.dk í gærdag að jafnvel þótt Portúgal sleppi naumlega frá útboðinu í dag þannig að vextirnir hækki ekki meir en orðið er séu allar líkur á að landið taki þau „þungu skerf" á næstum vikum að biðja um aðstoð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×