Innlent

Taldi sig sloppinn en var gripinn heima hjá sér

Lögregla stöðvaði þrjú ungmenni sem voru að koma á bíl úr Heiðmörk í nótt og fundu lögreglumennirnir kannabislykt í bílnum. Ekkert saknæmt fannst þó í bílnum og fékk fólkið að halda áfarm.

Skömmu síðar fundu lögreglumenn samanbortið blað í vegkantinum með útprentuðum tölvupósti og voru leifar af kannabisi í því, og nafn ökumannsins nýsloppna var í haus póstsins. Var því setið fyrir honum við heimili hans og hann handtekinn við heimkomuna.

Þvagprufa leiddi svo í ljós að hann hafði neytt kannabis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×