Símahleranir - Murdoch-feðgar í vandræðalegri stöðu 16. ágúst 2011 14:09 James Murdoch er meðal valdamestu fjölmiðlamanna heims. Nú vex þrýstingur á hann að segja af sér.
Feðgarnir og fjölmiðlabarónarnir James og Rupert Murdoch standa nú í meiriháttar veseni. Ný gögn benda til þess að þeira hafi vitað að starfsmenn þeirra notuðu símahleranir við fréttaframleiðslu. Hjá Ofcom, sem er nokkurs konar útvarpsréttarnefnd Bretlands, stendur yfir rannsókn á því hvort þeir séu enn hæfir til að reka fjölmiðil. Þá vex einnig þrýstingur á James að segja af sér sem stjórnarformaður SKY. Þingmaðurinn Tom Watson kallaði málið „stærstu yfirhylmingu sem hann hefði séð á ævinni". Kveikjan að þessu umstangi er bréf sem birtist fyrst opinberlega í dag. Bréfið var skrifað af Clive Goodman, fyrrum blaðamanni News of the World sem fyrir fjórum árum var handtekinn fyrir símahleranir, meðal annars hjá bresku konungsfjölskyldunni. Símahleranirnar notaði hann við fréttaframleiðslu og hlaut einn refsingu fyrir þær. Í bréfinu kemur fram að ritstjórar blaðsins hafi vitað af símahlerununum og þær hafi verið ítarlega ræddar á starfsmannafundum blaðsins. Í bréfinu segir einnig að Clive Goodman hafi fengið loforð um að halda starfi sínu ef hann nefndi ekki undir vitnaleiðslum að fleiri á blaðinu hafi verið viðriðnir hleranirnar. Fram hefur komið að blaðið greiddi Clive Goodman fyrir málaferlin full árslaun, lögfræðikostnað og væna uppbót, samanlagt að andvirði rúmra 45 milljóna króna. Það er talsvert hærri upphæð en áður hefur verið haldið fram. Þingmaðurinn Tom Watson lét hafa eftir sér að þetta væri tilraun til að kaupa þögn Goodman. Því hafa talsmenn Murdoch-feðga hafnað. Murdoch-feðga bíður því erfitt tímabil við að hreinsa æru sína og koma í veg fyrir að þeir missi fjölmiðlaréttindin. Þeir eru eigendur eins stærsta fjölmiðlaveldis heims og hafa verið taldir meðal 100 valdamestu manna heims.
Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Manngerð hlýnun gerði flóðin í Evrópu tvöfalt líklegri en ella Unnu spellvirki á finnska þinghúsinu til að mótmæla móvinnslu Hútar vilja háþróaðar stýriflaugar frá Rússum Combs sakaður um enn eina kynferðisárásina Infowars á uppboð í nóvember upp í skuld við syrgjandi fjölskyldur Starfsmenn Boeing sagðir hafna tilboði um 30 prósent launahækkun Sakar Hezbollah um að leiða Líbanon „að hyldýpinu“ Sonur tilræðismannsins handtekinn vegna barnaníðsefnis Með þrjú flugmóðurskip á sjó í fyrsta sinn Enn einn leiðtogi Hezbollah felldur Þreföldun á endurnýjanlegri orkuframleiðslu innan seilingar Skutu viðvörunarskotum að norsku skipi í norskri lögsögu Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana „Sterk Úkraína mun neyða Pútín að samningaborðinu“ Halda árásum áfram og beina sjónum að eldflaugastæðum Hezbollah Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Sjá meira