Innlent

Ákærður fyrir að smygla amfetamíni í skópörum

Héraðsdómur Reykjaness.
Héraðsdómur Reykjaness.

Serbneskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til þess að smygla tæpu kílói af amfetamíni til landsins á síðasta ári. Maðurinn, sem er 34 ára gamall, kom hingað til lands 9. nóvember. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í morgun.

Tollgæslan stöðvaði för mannsins og leitað á honum. Þeir fundu alls 755 grömm af amfetamíni falið í tveimur skópörum í farangri mannsins. Hann var að koma frá Danmörku með efnin.

Maðurin tók ekki afstöðu til sakarefnanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×