Innlent

Ökumenn tveggja bíla á slysadeild eftir árekstur

Ökumenn tveggja bíla voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur bílanna á mótum Hverfisgötu og Barónstígs í Reykjavík í gærkvöldi.

Við áreksturinn valt annar bíllinn á hliðina. Slökkvilið var kallað á vettvang til að hreinsa upp bensín og olíu sem láku úr bílunum og sköpuðu eldhættu.

Ökumennirnir, sem voru einir í bílum sínum, meiddust ekki alvarlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×