Erlent

Hergeymslur eyðilagðar

Mynd/AP
Herþotur á vegum NATO sprengdu snemma í gærmorgun vopnabúr og geymslur stjórnarhersins í austurhluta Trípolí, höfuðborgar Líbíu. Einnig var sprengjum varpað á fleiri skotmörk í borginni, þar sem æðstu ráðamenn þjóðarinnar hafast við.

Uppreisnarsveitir áttu einnig í hörðum átökum við stjórnarher Múammars Gaddafí í olíuborginni Brega austan til í landinu. Hvorki uppreisnarherinn né liðsmenn Gaddafís virðast þó ná að brjótast út úr þeirri pattstöðu sem ríkt hefur í hernaðinum mánuðum saman.

- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×