Körfubolti

Kristrún í Val

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kristrún í Valsbúningnum.
Kristrún í Valsbúningnum.
Ein af sterkari körfuboltakonum landsins, Kristrún Sigurjónsdóttir, hefur ákveðið að söðla um og er genginn í Val frá Hamri. Kristrún skrifaði undir tveggja ára samning við Valsmenn.

Kristrún spilaði þar á undan með Haukum en þar varð hún margfaldur meistari, þrívegis Íslandsmeistari  2006, 2007 og 2009 og jafnframt bikarmeistari  tvisvar sinnum 2005 og 2007.

Kristrún er bakvörður og hefur verið einn af stigahæstu íslensku leikmönnum deildarinnar undanfarin ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×