Lífið

DiCaprio á lausu

Leonardo DiCaprio og Bar Rafaeli eru hætt saman eftir fimm ára samband.
Leonardo DiCaprio og Bar Rafaeli eru hætt saman eftir fimm ára samband.
Leonardo DiCaprio er hættur með kærustu sinni, ísraelsku fyrirsætunni Bar Rafaeli. Þetta kemur fram í New York Post. Þau hafa verið saman í fimm ár og ákváðu í síðustu viku að þetta væri orðið gott.

„Þetta var óhjákvæmilegt, þau eru ennþá vinir og tala saman. Þau hafa bara þroskast hvort í sína áttina," hefur New York Post eftir heimildarmanni sínum.

Blaðið greinir jafnframt frá því að hvorki DiCaprio né Rafaeli hafi verið reiðubúin til að binda sig til frambúðar; þau séu bæði ákaflega upptekin á sínu sviði og hafi því vart tíma fyrir hvort annað.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem DiCaprio og Rafaeli hætta saman, þau voru í sundur í sex mánuði árið 2009 eftir að hafa verið saman í fjögur ár. DiCaprio hefur lýst því yfir að hann sé ekki viss um að hjónaband sé rétti hluturinn fyrir sig. „Ég hef séð allt of mörg hamingjusöm hjónabönd fara í súginn og þá hef ég yfirleitt verið jafn hissa og allir aðrir."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.