Innlent

Sýra fannst í þurrfóðri

Mynd tengist frétt ekki beint. Fréttablaðið/Stefán
Mynd tengist frétt ekki beint. Fréttablaðið/Stefán
Ákveðið hefur verið að innkalla Iceland Pet þurrfóður vegna ábendinga frá Matvælastofnun. Í tveimur sýnum af fóðrinu fannst cyanuric sýra í litlu magni.

Í tilkynningu frá IFEX, sem framleiðir þurrfóðrið, segir að í varúðarskyni hefur sala á fóðrinu verið stöðvuð þar til niðurstöður frekari rannsókna liggja fyrir.

„Hunda- og kattaeigendum, sem kunna að eiga þetta gæludýrafóður í fórum sínum, er bent á að skila því í næstu verslun Bónuss gegn endurgreiðslu,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×