Innleiðing ESB-reglugerða er skilvirkari 21. mars 2011 11:00 Eftirlitsstofnun EFTA gefur á tveggja ára fresti út skýrslu um innleiðingu ESB-reglugerða í EES-ríkjunum.
Íslenskum stjórnvöldum hefur gengið betur að innleiða lög um innri markað Evrópu eftir að Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu eftirlitsstofnunar EFTA um EES-ríkin. Innleiðing reglna í samræmi við EES-samninginn er meðal þess sem litið er til í aðildarviðræðunum við ESB. Hlutfall þeirra laga sem Ísland á eftir að innleiða lækkaði úr 1,3 prósenti í 1 prósent á milli ára en 1 prósent er viðmiðunarmark eftirlitsstofnunar EFTA. Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 2003 sem Ísland stenst viðmiðunarmarkið. Ísland er þó áfram eftirbátur Noregs og Liechtenstein en þar er sama hlutfall annars vegar 0,2 prósent og hins vegar 0,5 prósent. Meðaltal EES-rikjanna er lægra en meðaltalið í aðildarríkjum ESB. Fjöldi þeirra reglugerða sem Ísland á eftir að innleiða vegna þátttökunnar í EES er nú 33 en var 50. Ein reglugerð hefur verið óinnleidd í meira en tvö ár sem þykir ámælisvert. Ísland þarf samkvæmt EES-samningum að innleiða allar reglugerðir um innri markað Evrópu. Ríkjum er hins vegar í sjálfvald sett hvernig innlend löggjöf er aðlöguð að ESB-reglugerðum. Ísland innleiðir reglugerðir um innri markaðinn með 10,7 mánaða töf að meðaltali, sem er aukning um 0,2 mánuði á milli ára.- mþl
Mest lesið Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Innlent Rússar lýsa yfir neyðarástandi Erlent Myndi fara stystu leið upp í sveit Innlent Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Innlent Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Innlent Sleginn í rot í hópslagsmálum í miðbænum Innlent Gerðu loftárás á skóla í nótt Erlent Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Erlent Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Erlent Umdeilt kosningamyndband Höllu „bara í gríni gert“ Innlent Fleiri fréttir Sleginn í rot í hópslagsmálum í miðbænum Myndi fara stystu leið upp í sveit Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Rússar lýsa yfir neyðarástandi og nýtt rafskútufyrirtæki Brutu rúður í strætóskýlum í Mjódd Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Umferðartafir vegna áreksturs Sparkaði í meðvitundarlausan mann og skar annan í andlitið Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Patrik biðst afsökunar Lögregla heldur þétt að sér spilunum og Bolt mætir til leiks í Reykjavík Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Blöskrar græðgi á kostnað gæða Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Veislan tekin af dagskrá FM957 „Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Sjá meira