Lífið

Fallegustu prinsessur og prinsar heims

Svona lítur topp tíu listinn yfir fallegar prinsessur út. Myndir/Beautifulpeople.com
Svona lítur topp tíu listinn yfir fallegar prinsessur út. Myndir/Beautifulpeople.com
Vefsíðan BeautifulPeople.com fékk yfir hundrað þúsund manns til að velja tíu fallegustu prinsessur heims og kom nokkuð á óvart að Kate Middleton, tilvonandi eiginkona Vilhjálms Bretaprins, þótti fallegri en Díana prinsessa, móðir Vilhjálms.

Leikkonan og prinsessan Grace Kelly þótti sú fegursta og kom það væntanlega fáum á óvart. Rania, drottningin af Jórdaníu, hreppti annað sætið enda þykir hún sérstaklega fögur. Þriðja sætið kom í hlut Kate Middleton og fast á hæla hennar fylgdi Díana prinsessa.

Aðrar prinsessur sem komust á listann voru meðal annars Karlotta af Mónakó, sem er barnabarn Grace Kelly, og sænska prinsessan Madeleine.

Í könnuninni var einnig spurt um fallegustu prinsa heimsins og var það Karl Svíaprins sem þótti bera af þar. Vilhjálmur prins lenti í fimmta sæti og Harry bróðir hans í því fjórða.

Einnig var spurt um ljótasta kóngafólkið og var Evgenía Jórvíkurprinsessa kosin þar í fyrsta sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×