Viðskipti erlent

Breski seðlabankinn spáir minni hagvexti á árinu

nefjum stungið saman Breski seðlabankastjórinn Mervyn King, sem hér ræðir við kollega sinn Ben Bernanke, segir hækkun á hrávörumörkuðum hægja á efnahagsbatanum. 
Fréttablaðið/AFP
nefjum stungið saman Breski seðlabankastjórinn Mervyn King, sem hér ræðir við kollega sinn Ben Bernanke, segir hækkun á hrávörumörkuðum hægja á efnahagsbatanum. Fréttablaðið/AFP
Verðbólga í Bretlandi verður líklega yfir markmiðum og hagvöxtur minni en áætlað var næstu tvö árin, samkvæmt ársfjórðungsspá Englandsbanka sem birt var í gær. Breska dagblaðið The Guardian hefur eftir seðlabankastjóranum Mervyn King að horfur til skamms tíma hafi versnað frá því í febrúar.

Í spánni kemur fram að almenn hækkun á vöruverði samhliða hækkun á virðisaukaskatti í Bretlandi muni koma illa við neytendur. Það hægi svo á efnahagsbatanum eftir fjármálakreppuna.

Breski seðlabankinn gaf síðast út verðbólguspá í febrúar. Þar er gert ráð fyrir því að verðbólga verði í kringum 2,0 prósent um næstu áramót en einu prósentustigi hærri að ári. Í nýju spánni er gert ráð fyrir að verðbólga verði í kringum 5,0 prósentin næstu tvö ár og að hagvöxtur verði 1,7 prósent um áramótin í stað 2,0 prósenta.

Gert er ráð fyrir 2,2 prósenta hagvexti á næsta ári í stað 3,0 áður. Greiningaraðilar höfðu almennt reiknað með því að Englandsbanki myndi draga úr horfum frá í febrúar, ekki síst þar sem hagvöxtur var 0,3 prósentustigum undir hagspá bankans á fyrsta ársfjórðungi.

Dagblaðið hefur eftir seðlabankastjóranum King að erfitt sé að spá fram í tímann, einkum vegna öfgafullra sveiflna á hrávöruverðsmörkuðum. Ekki megi útiloka að stýrivextir verði hækkaðir fyrir árslok einmitt til að hindra að verðbólga fari úr böndunum. - jab






Fleiri fréttir

Sjá meira


×