Erlent

Grunaður um morð á hjónum

Grunaður í Haldi Lögreglan á Fjóni hefur handtekið mann á fertugsaldri sem er grunaður um morð á hjónum fyrir tæpum mánuði.NordicPhotos/Getty
Grunaður í Haldi Lögreglan á Fjóni hefur handtekið mann á fertugsaldri sem er grunaður um morð á hjónum fyrir tæpum mánuði.NordicPhotos/Getty
37 ára gamall karlmaður var handtekinn í miðborg Óðinsvéa í gær, grunaður um morð á hjónum í skóglendi í nágrenni borgarinnar fyrir tæpum mánuði.

Morðin vöktu mikinn óhug um land allt, en rannsóknin gekk hægt framan af. Eftir að munir úr eigu fórnarlambanna fundust fór hringurinn hins vegar að þrengjast og gaf lögregla út lýsingu á manni fyrr í vikunni, sem leiddi til handtökunnar í gær.

Hinn handtekni er kunnur lögreglu fyrir smáglæpi, en ekkert hefur verið gefið út um mögulega ástæðu fyrir verknaðinum.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×