Innlent

Skemmdi bíla með spörkum

Rúmlega tvítugur maður hefur verið ákærður fyrir stórfelld skemmdarverk á fjórum bílum. Maðurinn réðst inn í tvo bíla á bílastæði í Grindavík í júní á síðasta ári.

Þá lét hann grjóti rigna yfir þrjá bíla til viðbótar og sparkaði í þann fjórða. Verulegar skemmdir urðu á bílunum, brotnar rúður, dældir og lakkskemmdir.

Eigendur bílanna gera skaðabótakröfur á hendur manninum. Þær hlaupa á hundruðum þúsunda króna. Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×