Google sækir sér fé 18. maí 2011 07:00 vilja eiga lausafé Google vill hafa yfir nægu fé að ráða, komi upp óvænt kauptækifæri. Hér er Sergey Brin, annar tveggja stofnenda Google. Fréttablaðið/AFP
Bandaríska netfyrirtækið Google ætlar að sækja sér þrjá milljarða dala, jafnvirði 350 milljarða króna, með skuldabréfaútboði. Þetta er fyrsta skuldabréfaútboð fyrirtækisins. Breska viðskiptadagblaðið Financial Tims segir hagstætt fyrir fyrirtæki að fjármagna sig með þessum hætti, þar sem fjármögnunarkostnaður sé nú lágur vestanhafs. Stýrivextir í Bandaríkjunum hafa staðið í sögulegum lægðum síðan í desember 2008. Google fetar í fótspor hugbúnaðarrisans Microsoft, sem hefur sótt á skuldabréfamarkað síðastliðin tvö ár með góðum árangri. Fram kemur í Financial Times að stjórnendur Google séu hugsanlega að safna í sjóð til að hafa lausafé á milli handanna þegar óvænt kauptækifæri komi upp. Óformlegar viðræður fóru fram á milli stjórnenda Google og helstu fjárfesta Skype á dögunum. Google lagði aldrei fram formlegt tilboð og varð úr að Microsoft keypti fyrirtækið fyrir 9,5 milljarða dala, jafnvirði 980 milljarða íslenskra króna.- jab
Mest lesið Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Neytendur Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Neytendur Ritúalið verður að Skjóli Viðskipti innlent Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Neytendur Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Engin hópuppsögn í júlí Viðskipti innlent Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Viðskipti innlent Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira