Háloftasýning við Austurvöll 20. maí 2011 11:45 MYND/Stefán Karlsson.
Tugir sjálfboðaliðar héngu í 50 metra hæð yfir Austurvelli í gær á æfingu spænska fjöllistahópsins La Fura dels Baus fyrir opnunaratriði Listahátíðar í Reykjavík. Breyta þarf flugumferð yfir miðborginni á meðan á sýningu stendur. Listahátíð í Reykjavík hefst nú um helgina. Formlegt opnunaratriði hátíðarinnar verður mikið sjónarspil, þar sem katalónski fjöllistahópurinn La Fura dels Baus sýnir á Austurvelli. Um sextíu íslenskir sjálfboðaliðar taka þátt í sýningunni, en í einu atriðinu eru 42 sjálfboðaliðar hífðir upp í 50 metra hæð. Það er langtum hærra en nærliggjandi byggingar og hafa flugmálayfirvöld látið breyta venjulegum flugleiðum yfir miðborginni á meðan á sýningunni stendur. Að sögn Steinunnar Þórhallsdóttur, kynningarstjóra Listahátíðar, var enginn hörgull á fólki sem vildi láta kippa sér af jörðinni. „Við fengum mjög fljótlega þann fjölda sem okkur vantaði og lokuðum þá fyrir umsóknir," segir hún. „Við auglýstum ekki víða heldur létum við þetta meira spyrjast út og það gekk mjög vel." Flestir sjálfboðaliðanna eru að sögn Steinunnar dansarar, dansnemar, félagar úr í íslenska fjöllistahópnum Sirkus Sóley og leikarar. Æfingar hafa gengið vel, en tveir sjálfboðaliðar hættu að vísu við þátttöku eftir fyrstu æfinguna í Tjarnarbíói. „Á miðvikudag var fyrsta æfingin með sjálfboðaliðunum. Þá sýndu spænsku listamennirnir hvað atriðið fæli í sér og einn eða tveir skiptu um skoðun í kjölfarið. En það kom ekki að sök; það er mikil áhersla lögð á öryggi sjálfboðaliðanna og þess gætt að öllum líði vel." Sviðslistahópurinn La Fura dels Baus á sér um þrjátíu ára sögu; hann spratt upphaflega upp sem götuleikhús í Barcelona en hefur síðan þá sýnt fyrir milljónir áhorfenda um víða veröld. Hópurinn flutti opnunaratriði á Ólympíuleikunum í Barcelona árið 1992 og hefur síðan sett upp leiksýningar, óperur og útiatriði með sínum hætti þar sem allir miðlar koma saman: leikhús, rokktónlist, loftfimleikar, kvikmyndir og dans. Sýning hópsins á Listahátíð verður aðeins flutt einu sinni, laugardaginn 21. maí klukkan 15 á Austurvelli. Atriðið tekur um 40 mínútur. bergsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Starmer heldur neyðarfund vegna óeirðanna Erlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Ofurölvi vistaður í fangaklefa Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Dregur úr vindi með morgninum Veður Segir af sér og flýr land Erlent Ræddu falsfréttir og samfélagsmiðla á neyðarfundi Erlent Fleiri fréttir Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Sjá meira